miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Harmlaus

Þetta orð hnaut ég um í dagblaðinu í dag. Fyrst skellti ég uppúr yfir þessari fáránlegu ambögu, en síðan runnu á mig tvær grímur. Ha – hugsaði ég með mér – er þetta orð til á íslensku? Ég fór með það aftur og aftur fyrir munni mér og einhvern vegin varð ég ringlaðari eftir því sem á leið. Orðið hljómar eitthvað svo íslenskt…. Harmlaus…..að vera laus við harm.

Svo fletti ég þessu upp í orðabók og auðvitað er orðið harmlaus ekki til. Meinlaus jú, en ekki harmlaus.

Þeir eru flipparar á dagblaðinu.

Þetta fékk mig reyndar til að rifja upp tölvuleikinn ELITE, sem ég spilaði dægrin löng með Benna frænda hérna í den. Þar byrjaði maður með titilinn „harmless“. Eftir langa hríð og marga harða hildi fékk maður stöðuhækkun, og sæmdarnafnbótina „mostly harmless“. Þetta þótti mér fyndið og þykir enn. Löngu síðar skrifaði ég svo handrit að geim tölvuleik, sem í raun var ekkert nema stórkostlega flókin endurgerð á þessum gamla leik. En það er nú önnur saga.
hit counter script