mánudagur, nóvember 07, 2005

Öskurapar











Hvað gengur að þeim menntaskólanemendum sem eru að mótmæla styttingu framhaldsskólans?

Það sem ég kvartaði einna helst yfir þegar ég var í Menntaskóla, var að námið var svo óhugnanlega langdregið, að mér lá við gráti á af leiðindum. Og ekki bætti úr skák að vita til þess að flestar vestrænar þjóðir hleyptu sínum nemendum átján ára gömlum í háskóla.

Ég get alveg skilið röflið í menntaskólakennurum, þeir eru náttúrulega bara að passa uppá sitt starf, en að nemendur skuli dragnast niður á Austurvöll og veifa skiltum… það er mér algjörlega óskiljanlegt.

Hérna einu sinni flykktust menntakólanemar til að mótmæla stríðsbrölti og þessháttar. Í dag fást þeir ekki af rassgatinu til annars en að mæla einhverju afturhaldi bót – sem lið í kjarabarátta kennara!

Svei attan, það ætti að flengja þetta lið!

Posted by Picasa
hit counter script