fimmtudagur, janúar 26, 2006

Ameríkujól














Jæja þá er maður bara kominn í gang! Best að vera þá ekkert að tvínóna við þetta og setja inn meira snakk.

Systir mín sem gengur gjarnan undir kenniheitinu Stínill Vínill, hvatti mig til að segja sögur af því hvað ein dökkhærð systir hafi verið góð í útöndum og önnur ljósleitari að sama skapi vond. Það er nú reyndar auðleyst. Sem dæmi um sannleiksgildi ofangreindra ályktana má nefna að sú fyrrnefnda gaf mér 2 innbundnar bækur eftir C.S. Lewis í jólagjöf - hin gaf mér augnhárakrullara.

Ég var auðvitað búinn að sjá þetta fyrir og hafði svarað fyrir mig (fyrirfram) með því að kaupa enga jólagjöf handa minni ljóshærðu systur og hennar tattúveraða manni. Hinum heiðurshjónunum gaf ég hinsvegar hið forláta borðspil Axis & Allies, og er engum minkunn að þeirri gjöf, hvorki þeim er þiggur né gefur.

Annars gaf ég fáar gjafir þessi jól, og er það prýðilegt sparnaðarráð sem ég get hiklaust mælt með. Enda þykir mér gaman að fá gjafir, en að sama skapi bæði erfitt og taugatrekkjandi að kaupa gjafir handa öðrum – svo ekki sé nú minnst á útgjöldin! Ég gaf samt næst yngstu systur fjarstýrða, rafdrifna prumpmaskínu.

Synir mínir voru báðir fallegir og góðir. Sólin skein, faðmur fjölskyldu var breiður, rússíbanarnir hrikalegir og svona almennt séð var allt bæði ljúft og sætt í Flórída.

Þar hafiði það.
hit counter script