The Selfish Gene
Annars var ég spurður að því í dag hvort ég hefði lesið bókina The Selfish Gene.
HAH! Ótrúlega spurning... Þegar ég las bókin fyrst (í næturrútu á leið frá Hiroshima) varð ég fyrir svo miklum áhrifum af henni að ég felldi tár. Bókstaflega! Síðar lánaði ég þessa bók útum allt, kennurum, vinum og velunnurum. Hef keypt nokkur eintök og lesið nokkrum sinnum. Og í kjölfarið hef ég reyndar lesið allt annað sem höfundurinn Richard Dawkins hefur skrifað. Þegar ég var að gera Hættuspilið laumaði ég meira að segja inn spjaldi með eftirfarandi texta: "Þú lest bókina selfish Gene - færð eina heilasellu". Um dagin skrifaði ég svo heimspekiritgerð útrfá hugleiðingum höfundarins og fékk 10 í einkunn -
Ég veit ekki hversu óteljandi sinnum ég hef spurt þessarar spurningar sjálfur, þ.e. hvort hinn eða þessi hafi lesið bókina The Selfish Gene. Loksins þegar ég fékk spurninguna til baka, varð mér svo mikið um að ég gat ekki hamið geðshræringu mína, og romsaði uppúr mér þeim staðreyndum sem ég taldi að ofan. Nærstödd persóna sem varð vitni að ofsafengnum viðbrögðum mínum, við því sem henni virtist augljóslega eðlileg spurning, gat ekki annað en komið með þá athugasemd að það stæði nú ekki skrifað utan á mér að ég hefði lesið þessa bók.
Ég er feginn að hafa aldrei látið verða af því að fá mér tattoo....

<< Home