mánudagur, júlí 10, 2006

Kanvaldi

Vaknaður!

Mig langar til að skrifa um fallega skepnu; lítið spendýr sem gengur undir tegundarheitinu kanvaldi. Kanvaldinn er ferfættur, um 60 cm á hæð og alsettur þykkum, mjúkum loðfeldi. Andlit kanvaldans er blíðlegt, augun stór og möndlulaga og snoppan breið og örlítið rök. Loppur kanvaldans eru hlutfallslega stórar miðað við fætur og líkamann. Eyrun eru löng og lafandi og á afturndanum trónir loðinn dindill.

Lundarfar kanvalda er einstaklega blítt, enda lifir hann eingöngu á berjum, blómasafa og daggardropum og skaðar enga lífveru. Kanvaldinn er feiminn en ekki fælinn, enda að eðlisfari forvitinn og jafnvel ævintýragjarn.


Því miður er þessi skepna löngu útdauð og það er synd. Án hennar er jörðin fátækari og ögn kaldari staður.

.....
hit counter script