sunnudagur, júlí 16, 2006

Reiður Ungur Maður

Ungur maður að nafni Sindri Eldon hefur vakið áhuga minn að undanförnu. Þessi drengur á án efa skilið nafnbótina dónalegasti maður á Íslandi.

Hugrennigar piltsins má lesa á þessari síðu. Og tónleikagagnrýni hans á afmælistónleika Bubba má finna hér.

Þessum unga manni virðist óskaplega mikið niðri fyrir. Svo mikið að ekki aðeins eru setningar hans langar og orðmargar, heldur er orðbragðið svo svæsið að leitun er að öðru eins.

Þó verð ég að viðurkenna að ég hef lúmskt gaman að honum. Árásir og sleggjudómar í skrifum hans eru svo gersamlega hömlulausar, að ég gat ekki annað en skellt upp úr þegar ég las þau fyrst. Skrifin eru svo langt yfir öll eðlileg mörk, að segja má að þau fari hringinn og verði í raun nokkuð meinleysisleg. Svona eins og þegar chihuahua hundur froðufellir af reiði.

Ég efast ekki um að ýmislegt er í þennan unga mann spunnið, og eflaust eigum við eftir að fá að njóta einhverra afurða sköpunarkrafta hans í framtíðinni. Það væri allavega gaman að sjá hver afrakstur þessarar miklu orku gæti orðið, væri hún beisluð að fullu..... og ef til vill tálguð örlítið.
hit counter script