mánudagur, júlí 24, 2006

Trútt um talað

Það er merkileg tilviljun að ég skyldi hafa skilið eftir færslu um Dawkins sem mitt síðasta innlegg á þennan vefbálk áður en ég tók mér nokkra mánaða pásu frá skrifum. Dawkins þessi kom nefnilega einmitt til landsins fyrir skemmstu á vegum uppljómaðra íslenskra trúleysingja. Mig langaði nú endilega að hitta kauða, en eitthvað framtaksleysi greip um sig og hindraði mig í þeirri fyrirætlan.

..... pása.

Hmmm…. Ég er eiginlega lentur í vandræðum með þessa færslu. Hún átti að vera einhverskonar heimspekilegt uppgjör við breytingar á minni heimsmynd og hugmyndafræði varðandi trú, en þegar á hólminn er komið vefst mér eiginlega tunga um tönn. Þetta er svo flókið mál að ég held ég færi útí einhvern óstöðvandi orðavaðal sem varla á heima á þessum slóðum. Á þessum póst-gervihnattaralda tímum bíður maður fólki einfaldlega ekki uppá slíkt. Ég ætla þess í stað að skrifa grein um málið fyrir sjálfan mig. Kannski get ég gert úr henni úrdrátt og birt hér síðar.

Þetta var nú aldeilis tilganslaus bloggfærsla….

Jæja ég pósta henni samt, bara svona til að halda dampi.

hit counter script